Jói (Jóhannes Helgason)
Söngvari
Arnar Kári (Arnar Kári Guðjónsson)
Gítarleikari
Guðni (Guðni Páll Pálsson)
Trommari
Hrói (Hróðmar Sigurðsson)
Gítarleikari
Gústi (Ágúst Leó Sveinsson)
Bassaleikari
Í byrjun árs 2009 komu saman fyrrum meðlimir Dust Cap og Hróðmar nokkur Sigurðsson og stofnuðu sveitina Volos. Eftir brotthvarf James Einars úr Dust Cap var ákveðin stefnubreyting í tónlistinni tekinn meðal þeirra sem eftir voru, og var nýr gítarleikari fengin til liðs við þá Arnar, Guðna, Jóa og Gústa. Grundvöllur var að þeirra mati fyrir því að byrja frá grunni með nýju nafni, breyttum áherslum og enn meiri metnaði, sem var þó mikill fyrir.
Til að byrja með er takmark meðlima Volos er styrkja sig innan íslensku rokk og metal senunnar, spila á sem flestum stöðum á Íslandi og bæta sig eins mikið og mögulegt er sem tónlistarmenn og hljóðfæraleikarar. Í Volos eru ungir og tiltölulega reynslulitlir rokkpúngar sem hafa þó háleit markmið og eru sífellt að leita nýrra leiða til að bæta sig og gera metnaðarfulla, góða og krefjandi tónlist.
Saga Volos er að mestu leyti óskráð... fylgist vel með.