|
Fyrsta upptakan! Við vorum að henda inn rough demo upptökum af fyrsta laginu sem Volos semur. Skítugt og vonandi svolítið þungt og ljótt, og svo er bara spurning hvað kemur næst! Við viljum þakka honum Herði Má kærlega fyrir að hanga hart með okkur um helgina í æfingahúsnæðinu okkar og taka þetta upp. Lítill tími og ekkert olnbogarými og verðum við því að taka hattinn ofan fyrir honum að ná þó þessu úr okkur.
Hægt er að hlusta á lagið hér á síðunni (spilari þarna uppi...), eða á MySpace síðu okkar, sem hægt er að fara á með því að smella á "Tónlist" linkinn hér fyrir ofan.
2. mars 2009 mán.
volosrocks.com Velkomin á heimasíðu Volos. Héðan er ætlunin að miðla fréttum af okkur, setja inn myndir og tónlist þegar tækifæri gefst til að hafa gott yfirlit yfir þá tónleika sem kunna að vera framundan. Endilega skoðið ykkur um þó lítið sé á síðunni að svo stöddu, og kynnið ykkur endilega MySpace, Facebook og aðrar slíkar síður okkar sem linkar eru inná hér að neðan.
Til að hafa samband við okkur má senda tölvupóst á volos@volosrocks.com, eða senda hverjum og einum okkar tölvupóst, en upplýsingar um þau netföng má finna á síðunni sem geymir upplýsingar um meðlimi Volos.
2. mars 2009 mán.
|